Yfirlýsing frá Valþóri Stefánsyni lækni um málefni Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar
yfirlæknamálum í Fjallabyggð. Ég mun einungis fjalla um það sem að mér
snýr og tek fram að þessar upplýsingar komu fram á starfsmannafundi á
Heilbrigðistofnun Siglufjarðar þann 29. September.
Mér var kunnugt um að Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar og Heilsugæslan
í Ólafsfirði yrðu sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 1.
Janúar 2010. Einnig hafði Andrés Magnússon tjáð mér nokkru áður að
hann styddi það að Ásgeir Bjarnason, læknir á Ólafsfirði tæki við sem
yfirlæknir (eða sem heitir í dag Framkvæmdastjóri lækninga) á nýrri
stofnun. Ég hafði tekið undir þetta sjónarmið hans ekki síst til að
halda jafnræði milli byggðakjarna.
Í síðustu viku kallaði Konráð Baldvinsson, forstjóri
Heilbrigðisstofnunarinnar, mig á sinn fund. Hann tjáði mér að Andrés
hefði lýst því yfir á framkvæmdastjórnarfundi að hann hefði ekki áhuga
á að starfa sem yfirlæknir sameinaðrar stofnunnar og bar við að Andrés
hefði lýst því yfir “að hann tæki ekki þátt í þessari vitleysu” í
sambandi við fyrirhugaðan niðurskurð. Hann tjáði mér enn fremur að það
yrði erfitt að starfa í svo viðamiklum málum með Ásgeir sitjandi á
Ólafsfirði þar til göngin opna. Hann bað mig því að taka að mér að
vera yfirlæknir fyrstu tvö ár nýrrar stofnunnar og Ásgeir tæki svo við
í framhaldi. Mitt svar var afdráttarlaust að algjör forsenda fyrir því
að ég gerði þetta væri að þeir Andrés og Ásgeir væru sáttir við það og
styddu mig í því. Ég gerði honum einnig ljóst að ég hefði engan
sérstakan áhuga á því að taka að mér yfirlæknisstöðu.
Í framhaldi af þessum fundi talaði ég við Ásgeir og Andrés. Ásgeir
leist vel á þetta og fannst ekki auðvelt fyrir sig að taka við fyrr en
eftir göng. Ég heyrði á Andrési að hann var ekki alls kostar sáttur
við Konráð og aðdraganda þessa máls og kannaðast ekki við
yfirlýsingar sínar á framkvæmdastjórnarfundi. Hann þyrfti að ganga frá
ýmsum málum við framkvæmdastjóra. Ég gerði Andrési það alveg ljóst að
ég tæki ekki við nema með hans sátt og stuðningi. Ég fór fram á það að
þeir Andrés og Konráð hittust og gengu frá sínum málum enda væri það
forsenda þess að ég tæki þetta að mér. Þeir áttu fund saman og ég
hitti þá báða eftir fund þeirra. Þeir báðir tjáðu mér að þeir myndu
boða til starfsmannafundar 29. September þar sem málin yrðu skýrð
fyrir starfsfólki og að Andrés styddi það að ég tæki við sem
yfirlæknir 1. Janúar.
Með þetta fór ég á starfsmannafundinn. En eins og kom fram á fundinum þá dró
ég tilboð mitt til baka um að taka við yfirlæknisstöðu, þar sem þar kom
berlega fram að Andrés var ósáttur við málið.
Þetta er hið rétta í málinu hvað að mér snýr og ég reyni með þessu að
leiðrétta rangfærslur í fjölmiðlum um minn þátt og ekki síst hér á
SKsiglo. Ég vil enn fremur taka fram að samstarf okkar Andrésar hefur
alltaf verið mjög gott og ég mun kappkosta að halda því áfram þrátt
fyrir þetta.
Siglufirði 1. Október 2009, Valþór Stefánsson, læknir
Athugasemdir