Grétar Rafn heimsóttur

Grétar Rafn heimsóttur Á enska vefmiđlinum This is Lancashire var í gćr greint stuttlega frá heimsókn heimildarmyndagerđarmanna á heimili

Fréttir

Grétar Rafn heimsóttur

Grétar Rafn. Nordic Photos / Getty Images/ visir.is
Grétar Rafn. Nordic Photos / Getty Images/ visir.is
Á enska vefmiðlinum This is Lancashire var í gær greint stuttlega frá heimsókn heimildarmyndagerðarmanna á heimili landsliðsmannsins Grétars Rafns Steinssonar hjá Bolton og er þar átt við upptökur á nýju sjónvarpsþáttaröðinni Atvinnumennirnir okkar sem Stöð 2 Sport mun sýna snemma á næsta ári.
Tekin voru upp myndbrot af varnarmanninum að slappa af á heimili sínu, að kaupa nýjan bíl og við æfingar með Bolton. Einnig var Grétar Rafn myndaður ásamt nokkrum liðsfélögum sínum hjá Bolton í keppni í GoKartbílaakstri. Í þættinum mun svo einnig koma fram að Grétar Rafn og eiginkona hans ætli að endurnýja hjúskaparheitin á Íslandi næsta sumar," segir meðal annars í fréttinni.
Kvikmyndatökumaðurinn Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram, er leikstjóri þáttanna.
„Við erum afar þakklátir Grétari og eiginkonu hans fyrir að bjóða okkur velkomna á heimili sitt og fyrir alla hjálpsemina við tökur á þættinum," segir Hannes.
Ómar Þorgeirsson skrifar:




Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst