OKKAR FÓLK. Heimsókn í heimahaga

OKKAR FÓLK. Heimsókn í heimahaga Í hádeginu var staddur hópur af kunnuglegum andlitum að snæða gómsætar veitingar í Aðalbakarí. Við nánari athugun voru

Fréttir

OKKAR FÓLK. Heimsókn í heimahaga

Falleg fjölskylda
Falleg fjölskylda

Í hádeginu var staddur hópur af kunnuglegum andlitum að snæða gómsætar veitingar í Aðalbakarí. Við nánari athugun voru þetta hjónin Sigrún Ingvarsdóttir (dóttir Siglfirðingsins Önnu Hreinsdóttur) og Fannar Vernharðsson (sonur Siglfirðinganna Huldu Kobbelt og Vernharðs Hafliðasonar) 

Þau ætla að dvelja hér í viku fríi með börnum og ættingjum og njóta þess besta sem fjörðurinn hefur að bjóða. Bæði eru þau í krefjandi störfum þar sem Sigrún starfar sem ljósmóðir á Landspítalanum og Fannar er yfirkokkur á Vox Restaurant.

Með þeim hjónum eru börnin Kristján Víðir og Anna Sigrún, bróðir Sigrúnar Ingvar Ingvarsson, mákona Auður Björt Skúladóttir og dóttir þeirra Katrín Emilía og Kristel Þórðardóttir yngri systir Sigrúnar.


Fannar ásamt foreldrum sínum og Siglfirðingum, þeim Huldu Kobbelt og Vernharði Hafliðasyni (Venna Halla)

Fannar er fæddur og uppalinn að hluta hér á Siglufirði en flutti ungur suður til Reykjavíkur með foreldrum sínum en Sigrún er fædd fyrir sunnan og uppalinn í Hafnafirði þar sem þau hjónin búa í dag.

Gaman er að geta þess að Anna Hreins (eins og hún er ávalt kölluð) móðir Sigrúnar og Hulda Kobbelt móðir Fannars eru bekkjasystur frá því í denn hér á Sigló og tilheyra hinum hressa árgangi 1958.

Við óskum þessari fallegu fjölskyldu góðra daga hér í firðinum fagra og biðjum þau um kveðju til foreldra og ættingja fyrir sunnan.

Fjórar kynslóðir af Siglfirðingum. Sigrún ásamt móður sinni Önnu Sigrúnu Hreinsdóttur og ömmu Sigrúnu Davíðsdóttur við skírn Önnu Sigrúnar Fannarsdóttur

Litla Anna Sigrún alsæl á Sigló

Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Jón Ólafur Björgvinsson, Kristín Sigurjónsdóttir og úr einkasafni 
FRÉTTASÍMI: 842-0089 


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst