Sjómaðurinn Páll Gunnlaugsson heiðraður

Sjómaðurinn Páll Gunnlaugsson heiðraður Í dag var athöfn á Rammatúni á Siglufirði þar sem blómsveigur var lagður að minnisvarða um drukknaða sjómenn og að

Fréttir

Sjómaðurinn Páll Gunnlaugsson heiðraður

Páll Gunnlaugson heiðraður
Páll Gunnlaugson heiðraður

Í dag var athöfn á Rammatúni á Siglufirði þar sem blómsveigur var lagður að minnisvarða um drukknaða sjómenn og að því búnu Páll Gunnlaugsson heiðraður fyrir sjómannsferil sinn. Hann er fæddur 28. febrúar 1936 og því orðinn 81 árs gamall.

Páll byrjaði á línubát frá Reykjavík þegar hann var 17 ára og fljótlega fór hann sem háseti á togarann Elliðaey frá Vestmannaeyjum. Hann lauk 120 tonna réttindanámskeiði í Borgarkaffi á Siglufirði, hjá Guðmundi Arasyni frá Sjómannaskólanum.

Palli Gull á sínum yngri árum til sjós. Myndin er í eigu Hafliðamanna og tók Jói Matt hana. Hafliðamenn skila kærri kveðju til Palla.

Það einkennir sjómannaferil Páls, að hann hefur víða komið við sögu á margs konar fiskiskipum. Eitt sumar var hann á mb. Garðari frá Patreksfirði, sem nú er hafður til sýnis í fjörunni í Skápadal þar vestra. Garðar er elsti stálbátur Íslendinga, smíðaður í Noregi árið 1912.

Hátíðarstund á Rammatúni

Mörg sumur var Páll á síld, t.d. á Hólmanesi frá Eskifirði sem var 250 tonna fley, smíðað í Austur-Þýskalandi. Vetrarpart var Páll á togaranum Austfirðingi og síðan oft á Hafliða SI 2 á sumrin, en á Þorsteini Ingólfssyni RE 206 á veturna. Upp úr 1960 gerðist Páll háseti á Hafliða SI 2 og var í áhöfn allar götur þar til togaranum var lagt við Hafnarbryggjuna árið 1972.

Séra Sigurður Ægison 

Páll hóf árið 1973 ásamt fleirum útgerð Jökultinds, 15 tonna báts. Stóð hún til 1979 og voru ýmsar veiðar stundaðar.

Í apríl 1974 kom Sigluvík, sem smíðuð var á Spáni, til Siglufjarðar og var Páll ýmist annar stýrimaður eða háseti á því skipi í nokkur ár.

Páll Gunnlaugsson heiðraður

Páll var lánsamur til sjós og minnist ekki neinna slysa um borð, þó stundum hafi legið nærri, eins og t.d. árið 1985 þegar hann var stýrimaður á Sveinborginni sem Sæmundur Árelíusson gerði út. Skipið var þá á leið til Englands undir skipstjórn Hjalta Björnssonar, þegar það fékk á sig brotsjó austur af Vestmannaeyjum. Brotið gekk í gegnum brúna og gerði svo til öll tæki ónothæf. En skipið komst inn til Vestmannaeyja og eftir lagfæringar var ferðinni haldið áfram.

Páll ásamt sonadætrum sínum, þeim Salóme Kristínu, Thelmu Sif og Dórótheu Sjöfn Róbertsdætrum

Sjómennska Páls endaði á rækjubátnum Ögmundi sem var í eigu þáverandi eigenda Sigló, sem einnig gerðu út rækjuskipið Helgu.

Þegar í land var komið hóf Páll störf á netaverkstæðinu á Siglufirði og vann þar til hann settist í helgan stein 69 ára gamall.

Eiginkona Páls er Stella Minný Einarsdóttir og börn þeirra eru Ólafur Þór, Ásdís Vilborg, Gunnlaugur, Ásgrímur, Sigurjón og Róbert.Systkinin Páll og Ásdís Gunnlaugs


Heiðursmenn spjalla saman að lokinni athöfn


Haukur Orri Kristjánsson spilar listilega á nikkuna 

Frétt tekin af vef Siglfirðings.is
Texti: Sigurður Ægisson
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir

 


Athugasemdir

10.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst