Alvarleg skilaboð til Sjálfstæðisflokksins

Alvarleg skilaboð til Sjálfstæðisflokksins Niðurstöður í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup fela í sér alvarleg skilaboð til stjórnarandstöðunnar og

Fréttir

Alvarleg skilaboð til Sjálfstæðisflokksins

Óli Björn Kárason
Óli Björn Kárason
Niðurstöður í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup fela í sér alvarleg skilaboð til stjórnarandstöðunnar og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega. Þrátt fyrir ótrúlegan vandræðagang í öllu sem ríkisstjórnin tekur sér fyrir hendur, tekst Sjálfstæðisflokknum ekki að sækja fram og auka fylgi sitt. Þvert á móti eru vísbendingar um að lítillega hafi dregið úr fylgi flokksins frá október til nóvember, þó það sé innan skekkjumarka. Um 34% aðspurðra í könnun Gallup segjast styðja Sjálfstæðisflokkinn nú.Á sama tíma jókst fylgi Samfylkingarinnar úr 18% í 22% á milli mánaða. Fylgisaukning Samfylkingarinnar er merkileg með hliðsjón af því að þeim fækkar jafnt og þétt sem eru ánægðir með störf Jóhönnu Sigurðardóttur. Nú eru aðeins tæp 21% ánægð með störf hennar en í febrúar á liðnu ári voru yfir 65% ánægð. Allir ráðherrar Samfylkingarinnar fá útreið að þessu leyti og eru innan við 20% sem segjast ánægð með störf þeirra, með einni undantekningu. Um 25% eru ánægð með Guðbjart Hannesson, heilbrigðisráðherra.

Aðeins ríflega 16% landsmanna eru ánægð með störf stjórnarandstöðunnar og hefur ánægjan með störf hennar minnkað umtalsvert frá því í vor, að því er kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup. Í vor voru 22% ánægð. Óánægja með störf stjórnarandstöðunnar eykst því. Sex af hverjum tíu eru óánægðir með störf hennar nú samanborið við 54% í vor.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að endurheimta stöðu sína sem kjölfesta í íslenskum stjórnmálum verður hann að endurnýja traust og trúnað við launþega og atvinnurekendur. Sú endurnýjun verður ekki nema forystumenn flokksins viðurkenni af einlægni að þeir misstu stjórn á útþenslu ríkisins og sofnuðu á verðinum. Sjálfstæðisflokkurinn verður að játa að á meðan hann stóð vaktina náði fámennur hópur viðskiptajöfra að sölsa undir sig stóran hluta fjölmiðla, verslunar og fjármála. Til urðu öflugar viðskiptasamsteypur vegna þess að eigendur þeirra nutu óeðlilegrar fyrirgreiðslu. Með því tókst að kæfa eða lama keppinauta. Margir hæfileikaríkir stjórnendur fyrirtækja hafa lotið í lægra haldi fyrir ójafnri og óeðlilegri samkeppni.

 Sjálfstæðisflokkurinn gaf Íslendingum ákveðin loforð og flokkurinn verður að viðurkenna í fullkominni hreinskilni, að í hraða nýrrar aldar og í sjálfumgleði velgengninnar, misstu menn á stundum sjónar á því sem mestu skiptir og er rist í steintöflur sjálfstæðisstefnunnar.

Þegar sjálfstæðismenn segja: Gjör rétt, þol ei órétt, má það ekki vera innantómt loforð. Í orðunum felst djúpstæð sannfæring fyrir því hvers konar þjóðfélagi flokkurinn berst fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn á að standa fyrir sjálfstæðu íslensku samfélagi sem byggir á krafti allra og sanngirni í garð hvers annars og að þeim sem hjálpar er þurfi verði komið til hjálpar. Gjör rétt, þol ei órétt, vísar til þess að sanngirni og virðing sé í öllum samskiptum – tekin sé staða með kaupmanninum á horninu sem berst ójafnri baráttu gegn öflugu viðskiptaveldi, sem allt ætlar að gleypa, að barist sé fyrir dugnaðarforkinn sem setti allt sitt undir við rekstur hjólbarðaverkstæðis og berst nú fyrir lífi sínu gegn ofvöxnum risa. Gjör rétt, þol ei órétt, vísar til þess að sjálfstæðismenn vilja byggja upp frjálst viðskiptalíf þar sem heiðarleg og sanngjörn samkeppni fært að njóta sín.

Gjör rétt, þol ei órétt, vísar ekki aðeins til þess loforðs sjálfstæðismanna að tryggja hér heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf. Þetta er loforð um að tryggja samfélag samhjálpar og náungakærleika. Samfélag þar sem þeir sem minnst mega sín eigi öfluga talsmenn – harða baráttumenn fyrir velferðarþjóðfélagi sem Sjálfstæðisflokkurinn átti öðrum fremur þátt í að byggja upp. En um leið verður að koma böndum á ríkið og hið opinbera. Sjálfstæðisflokkurinn verður að standa gegn því að ríkið seilist æ dýpra í vasa skattborgarana. Og engir gera sér betur grein fyrir þeirri einföldu staðreynd að ekkert þjóðfélag fær þrifist án öflugrar millistéttar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei gegnt mikilvægara hlutverki en einmitt nú þegar skipulega er reynt að útrýma millistéttinni. Ríkisstjórn hinnar norrænu velferðar telur það sérstaklega eftirsóknarvert að kæfa millistéttina – kæfa hinn venjulega Íslending – sjómanninn, kennarann, bóndann, iðnaðarmanninn og verslunarmanninn. Millistéttin – bakbeinið í íslensku samfélagi – á undir högg að sækja og lítur til Sjálfstæðisflokksins. Hið inngreypta loforð að gjöra rétt og þola ei órétt, er krafa millistéttarinnar til Sjálfstæðisflokksins. Þeirri kröfu verða forystumenn flokksins á Alþingi og í sveitarstjórnum að svara. Annars mun flokkurinn ekki ná sínum fyrri styrk.

Sjálfstæðisflokkurinn verður að endurnýja sáttmála við millistéttina og við sjálfstæðu atvinnurekendurna sem hafa lagt allt sitt undir. Slíkur sáttmáli er forsenda nýrrar sóknar.


Athugasemdir

18.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst