Framhaldsskólinn við norðanverðan Eyjafjörð

Framhaldsskólinn við norðanverðan Eyjafjörð Kennsla við framhaldsdeild á Siglufirði hefst  formlega næstkomandi föstudag 28. ágúst. Nú eiga nemendur á

Fréttir

Framhaldsskólinn við norðanverðan Eyjafjörð

Bergþór Morthens og Ingibjörg Magnúsdóttir
Bergþór Morthens og Ingibjörg Magnúsdóttir
Kennsla við framhaldsdeild á Siglufirði hefst  formlega næstkomandi föstudag 28. ágúst. Nú eiga nemendur á Siglufirði og Ólafsfirði kost á að stunda framhaldsnám í heimabyggð.
Fyrst um sinn verður þessi skóli á forræði VMA, en framtíð skólans er að öðru leiti óráðin. Stefnt verður að því að ráða skólameistara upp úr áramótum.

Í morgun mættu nemendur til fundar við kennara sinn, Bergþór Morthens framhaldsskólakennara, sem hefur verið ráðinn verkefnastjóri við framhaldsdeildina á Siglufirði. Einnig verður kennt á Ólafsfirði og mun Margrét Lóa Jónsdóttir sjá um Kennsluna.  Námsver skólans  er í nýjum og glæsilegum sal í húsakynnum skrifstofu Einingu-Iðju við Eyrargötu þar sem Bólsturgerð Siglufjarðar var starfrækt á árum áður.  Nemendur eru alls 28 og þar af 12 hér á Siglufirði.
Bergþór mun sjá um kennslu í lífsleikni, en önnur kennsla mun fara fram í fjarkennslu. Nemendur mæta í skólann alla virka daga frá klukkan 8.15 – 13.30 og er skyldumæting á þessum tíma, en nemendur geta nýtt aðstöðuna fram til kl. 16.00. Verklegi hluti íþróttakennslunnar verður í ræktinni, en bóklegi hlutinn verður kenndur í fjarnámi.  Bergþór verður tengiliður nemenda við VMA, aðstoðar nemendur við námið, veitir þeim aðhald, sér um skipulagningu og skráir mætingu. Nemendur taka virkan þátt í félagslífi og öllum stærri viðburðum á vegum VMA, auk þess að skapa sitt eigið félagslíf. Busahátíð verður þann 27. september og fer rúta þá héðan frá Siglufirði til Akureyrar. Við hjá Sksigló óskum kennurum og nemendum innilega til hamingju með skólann.







Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst