Fundur Samfylkingar á Allanum
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 29.09.2009 | 07:00 | | Lestrar 870 | Athugasemdir ( )
35 manns voru samankomnir á fundi Samfylkingarinnar í Allanum á Siglufirði í gærkvöld þar sem þau Kristján Möller, Sigmundur Ernir og Jónína Rós Guðmundsdóttir sátu undir svörum bæjarbúa.
Kristján Möller hóf fundinn á ræðu um Icesave sem hann taldi að aldrei hefði átt að vera til en í dag værum við hinsvegar í þeirri stöðu að við ættum engra kosta völ. Tók hann þar dæmi þess að ef um erlendan banka hefði verið að ræða á íslenskri grundu hefðum við að sjálfsögðu farið fram á það sama, „við verðum einfaldlega að borga“ sagði hann. Kristján lofaði í framhaldinu þeirri starfssemi sem á sér stað hjá Sparisjóð Siglufjarðar, nú væri verið að bæta við enn fleiri störfum hjá bankanum og það væri alveg til fyrirmyndar.
Varðandi göngin sagði Kristján Möller að Vegagerðin væri í gjörgæslu og hefði hnífurinn víða komið niður. Þar að auki hefur hrun íslensku krónunnar komið mjög illa niður á þeim verktökum sem koma að Héðinsfjarðargöngum og að á tímabili hafi útlit verið fyrir að samningar næðu ekki fram að ganga. Í dag náðist hinsvegar loksins sá áfangi að endursamið var við bæði Metrostav og Háfell um að vinna áfram að verkinu. Varðandi verklok kom lítið fram annað en það að verkáætlun mun liggja fyrir næstkomandi fimmtudag en dagsektir fyrir verkið hafa hinsvegar verið færðar aftur um tvo og hálfan mánuð, eða til 30. september 2010. Ljóst er því að um enn eina seinkunina er að ræða.

Sigmundi Erni er greinilega illa við Icesave og kallaði það mál „ógeð“ en tók þó undir með flokksbróður sínum þegar kom að endurgreiðslu skuldanna. Vildi Sigmundur meina að samningar þeir sem gerðir höfðu verið á sínum tíma væru ekki svo slæmir. Talaði Sigmundur mikið um sóknarfæri gangnanna fyrir Eyjarfjarðarsvæðið í heild sinni og að með tilkomu lengingar Akureyraflugvallar ættum við að geta herjað á ennþá öflugri ferðamannaiðnað á svæðinu bæði að sumri og vetri. Til hvers að fljúga útlendingunum öllum til Keflavíkur þegar þeir geta lent þar sem þeir stefna á að fara.
Varðandi kreppuna vill Sigmundur segja að á Íslandi sé ekki kreppa heldur samdráttur þar sem land og þjóð fellur aftur í tímann um 10 ár. Þá nefndi hann að svo sé komið að við þurfum að huga að grunnstoðum samfélagsins: menntun, heilsugæslu og samgöngum. Þetta verðum við að gera með því að setja skatta á hátekjufólk, þá sem hafa mjög háar tekjur. Við megum ekki horfa á einstaklinga með 700.000 krónur eða hjón sem hafa samanlagt 1.000.000 kr. á mánuði, „það eru ekki háar tekjur“ segir Sigmundur. Sigmundur fékk þetta þó rekið ofan í sig aftur þar sem honum var bent á að hér væru ekki margar fjölskyldur sem hefðu samanlagt yfir 500.000 kr. í mánaðarlaun.
Jónína Rós hóf ræðu sína á að segja hversu hreykin hún er af því að tilheyra jafnaðarmannastefnu og vill fá göng vítt og breytt um landið. Hún hefur barist fyrir því að liðka fyrir ákveðnum fyrirtækjum sem hún þekkir til og hafa lent í fjárhagsvanda og hvatti alla aðila landsbyggðarinnar til að hafa samband við sína þingmenn til að gera það sama. Síðan sátu frummælendur undir spurningum fundargesta.
Valgeir Sigurðsson spurði Kristján hvort ætti að fara bora nýjar heitavatnsholur þar sem núverandi holur anna ekki eftirspurn fyrir nýja notendur.
Kristján svarar því til að Skútudalurinn sé útboraður og hann viti ekki meira um málið.
Ólafur Jónsson spurði frummælendur hvort þeir ætluðu að standa vörð um embætti skattstjóra, sýslumanns og þeirra deildir.

Sigmundur og Jónína vilja standa vörð um þessi störf á landsbyggðinni. Kristján sagðist ekki hafi verið á þeim fundi sem rætt var um mál skattstjórans og mál sýslumannsins stafaði af niðurskurði.
Magnús Jónasson spurði út í sjávarútvegsstefnuna og hvort ætti að færa kvótann frá fyrirtækjum og hvort þau gerðu sér grein fyrir hvað það myndi þýða. Einnig spurði Magnús hvort ætti að segja upp yfirlækni á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar (Andrési Magnússyni).
Kristján svaraði að stjórnarflokkarnir hefðu báðir verið með fyrningarleiðina á stefnuskrá fyrir kosningar og það gæti komið til þess að kvóti yrði innkallaður hjá þeim sem fara illa með og þeir ættu að njóta þess sem fara rétt og vel með kvótann.
Sigmundur sem er í Heilbrigðisnefnd og hefur setið alla fundi nefndarinnar hefur ekki heyrt að það eigi að segja yfirlækninum á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar upp.
Egill Rögnvaldsson spurði Jónínu hvernig mál Framhaldsskólans í Fjallabyggð stæðu.
Jónína svaraði að hún vissi ekki nákvæmlega hver staðan væri en skildi og styddi baráttu íbúa Fjallabyggðar fyrir Framhaldsskólanum.
Margar fleiri spurningar voru spurðar og ræður haldnar en við stikluðum aðeins á stóru í því.
Fundarstjóri var Ólafur Haukur Kárason

Finnur Yngvi Kristinsson, Gunnlaugur Guðleifsson.

Athugasemdir