Myndakvöld í Litlu-Brekku
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 20.11.2009 | 12:00 | | Lestrar 858 | Athugasemdir ( )
Í gærkvöldi var haldið skemmtikvöld þar sem Siglfirðingar í Reykjavík og nágrenni komu saman á Litlu-Brekku (Lækjarbrekku). Þar stóð Siglfirðingafélagið fyrir myndasýningu í samstarfi við Ljósmyndasafn Siglufjarðar þar sem gestir báru kennsl á marga þá sem hingað til hafa ekki verið nafngreindir í safninu.
Framan af kvöldi voru þeir eldri atkvæðameiri t.d. Gústi Níls, Jonni Vilbergs, Þórir Björns og fleiri, en þegar líða tók á birtust yngri myndir á tjaldinu og þá heyrðist meira í Kristjáni Möller, Bjössa Birgis, Gumma Jóns, Gunnari Binnu, Stjána Hauks o.fl. Setið var á hverjum stól og verði uppákoman endurtekin sem vonir standa til, er ljóst að stærri sal þarf fyrir þá samkomu.
Kv. - Leó R. Ólason.

Athugasemdir