Snjóflóðavarnargarðarnir vígðir

Snjóflóðavarnargarðarnir vígðir Snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði voru vígðir við hátíðlega athöfn í gær.

Fréttir

Snjóflóðavarnargarðarnir vígðir

Ljósmynd, Steingrímur Kristinsson
Ljósmynd, Steingrímur Kristinsson
Snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði voru vígðir við hátíðlega athöfn í gær.
Tekið var á móti Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra og öðrum gestum við Bakkatjörn, þaðan sem gengið var eftir görðunum suður að samkomuflötinni fyrir ofan garð 2. Á göngunni var  staldrað við á útsýnisstöðum þar sem Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, Þorsteinn Jóhannesson verkfræðingur og Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf, tóku til máls og fræddu gesti um tilurð garðanna.
Dagskráin sjálf hófst síðan í blíðskaparveðri með lúðrablæstri úr krónu garðs númer 2. Því næst tók Svandís Svavarsdóttir til máls og minnti á mikilvægi þessara mannvirkja, og gat þess að snjóflóð hafa valdið mestu manntjóni hér á landi af öllum náttúruhamförum. Séra Gunnar Jóhannesson sóknarprestur á Hofsósi vígði garðana, eftir að gestir höfðu sameinast í bæn. Bæjarstjóri Siglufjarðar Þórir Kr. Þórisson opinberaði í kjölfar vígslunnar nafngiftir garðanna sex, auk tveggja tjarna. Efnt var til nafnasamkeppni og bárust níu tillögur að nöfnum á snjóflóðavarnargarðana. Örnefnafélagið Snókur, sem í eru Örlygur Kristfinnsson, Páll Helgason og Hannes Baldvinsson sendi inn þau nöfn, sem valin voru af sérstakri dómnefnd, en þau eru  Hlíðarrípill, Hafnarrípill, Skriðurípill, Skálarrípill, Bakkarípill og nyrsti leiðigarðurinn var nefndur Kálfur. Nafnið rípill merkir garður, og eru til dæmi um slík örnefni í Héðinsfirði og víðar í Eyjafirði. Tjarnirnar hlutu nöfnin Bolatjörn, en Sveinn Þorsteinsson sendi inn þá tillögu og Bakkatjörn sem Steingrímur Kristinsson nefndi. Þess má til gamans geta, að Steingrímur, Örlygur og Sveinn eru allir viðriðnir Sksigló.is og eins og flestir vita þá er Steingrímur stofnandi vefsíðunnar. Örnefnafélagið Snókur heldur út vefsíðunni Snókur.is
Gestir gengu svo frá  samkomuflötinni sem leið liggur suður og niður á útsýnishaus Stórabola, þar sem dagskránni lauk.
Reynir Vilhjálmsson hannaði garðana Litla- og Stóra Bola í samstarfi við Þorstein Jóhannesson, sem sá um frumáætlun og Árna Jónsson verkfræðing sem sá um fullnaðarhönnun. Reynir Vilhjálmsson hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir verkið þegar Rosa Barba landslagshönnunarverðlaunin voru veitt í Barcelona 2003.
Þvergarðarnir, sem vígðir voru í dag voru hannaðir af Þorsteini Jóhannessyni, Reyni Vilhjálmssyni og VSÓ ráðgjöf, en aðalverktaki við garðana var Suðurverk hf.
MYNDIR HÉR


Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst