Styrktarleikur fyrir Sigurð Hallvarðsson og fjölskyldu á sunnudag 8. nóv. kl 13.00
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 04.11.2009 | 07:00 | | Lestrar 871 | Athugasemdir ( )
Næstkomandi sunnudag, 8. Nóvember kl . 13:00, verður styrktarleikur í knattspyrnu á gervigrasinu við Þróttarheimilið í Laugardal. Markmiðið er að safna peningum til handa Sigurði Hallvarðssyni og fjölskyldu. Leikurinn verður á milli meistaraflokks Þróttar og Stjörnuliðs Willum Þórs. Á meðal leikmanna í stjörnuliðinu eru Guðni Bergsson, Arnór Gudhjonsen, Gummi Torfa, Sæbjörn Guðmunds, Óli Þórðar, Heimir Guðjóns, Gunnlaugur Jónsson, Þorvaldur Örlygsson, Hjörtur Júlíus Hjartarson, Kristján Jónsson, Rúnar Kristinsson, Fjalar Þorgeirsson, Haukur Magnússon, Jens og Hans, Ingvar Ólason, Þorsteinn Halldórsson, Guðmundur Erlingsson, Flosi Helgason, Gunni Helga, Jón Ólafsson, Dóri Gylfa og fleiri kempur.
Eins og margir vita hefur Siggi Hallvarðs átt við langvinn veikindi að stríða. Nú í haust fór hann í sinn þriðja uppskurð þar sem enn einu sinni var reynt að ná hinu illkynja heilaæxli. Siggi segir sjálfur að það hafi tekist loksins og að hann sé vonandi endanlega laus við meinið. Hins vegar lamaðist Siggi vinstra megin í líkamanum eftir uppskurðinn og er nú í endurhæfingu á Grensásdeild, sem gengur vel.
Sigga þarf auðvitað ekki að kynna fyrir Þrótturum og jafnvel ekki fyrir öðrum knattspyrnuáhugamönnum. Hann lék með Þrótti frá blautu barnsbeini og mætir enn á alla leiki félagsins, en spilaði engu að síður með Haukum í tvö ár og þjálfaði Hugin í eitt ár og spilaði einnig með liðinu, þar af tvo leiki í marki. Það ár var hann markahæstur yfir landið með 38 mörk. Auk þess var Siggi eitt ár hjá Fjölni. Siggi er í 8. sæti yfir flest skoruð mörk með meistaraflokki karla á landinu, frá upphafi. Hann er líka einn af bæði leikja- og markahæstu leikmönnum Þróttar frá upphafi. Þeir eru óteljandi leikirnir þar sem hann hefur reynst örlagavaldur með því að setja mark á lokamínútum úrslitaleikja og hefur reynst liðum sínum ákaflega drjúgur liðsmaður.
Vegna veikinda sinna hefur Siggi lítt stundað vinnu á árinu og mun ekki vinna fyrr en hann er búinn að ná sér. Það hefur sett strik í reikninginn hjá fjölskyldu hans. Þau Inga eru fimm í heimili, en samtals hafa þau eignast níu börn, saman og í sitthvoru lagi. Eitt barnanna sem ekki dvelur lengur heima er fjölfatlað og eitt barnanna sem býr heima er barnabarn þeirra.
Þetta hafa því ekki verið auðveldir tímar hjá Sigga og Ingu og því er markmiðið að létta undir með þeim. Leikurinn er á sunnudaginn kl. 13.00 í Laugardalnum á hinum nýja gervigrasvelli Þróttar.
Aðgangseyrir er að eigin vali. Þá hefur verið stofnaður reikningur fyrir þá sem komast ekki á leikinn og vilja styðja við bakið á Sigga. Reikningsnúmerið er 324-13-720, kt. 020163-2409. Við, gamlir félagar Sigga úr Þrótti, vonumst til að sem allra flestir sjái sér fært að styðja þennan gamla baráttuhund, í þeim erfiða leik sem hann hefur neyðst til að spila.
Nánari upplýsingar er að finna á www.trottur.is og hjá Ásmundi Helgasyni 821 5588 og Grétari Jónassyni 848 8555
Þeir sem hafa áhuga á að baka fyrir þennan viðburð hafi samband við Berg í síma 860-9906
Siggi Hallvarðs er stundum í símasambandi ef menn vilja ná í hann í síma 898 4803 og Inga er í síma 898 4859.
Vonumst til að sjá sem flesta á leiknum á sunnudaginn.

Athugasemdir