Hannes Boy

Hannes Boy Hannes Boy er sérstæður veitingastaður með notalegri stemmningu við smábátahöfina. Einvala lið matreiðslumanna og þjóna leggja ástríðu í

Fréttir

Hannes Boy

Hannes Boy býður ykkur innilega velkomin á einn sérstæðasta veitingastað á Íslandi.

Staðurinn er einstaklega vel staðsettur við smábátahöfnina á Siglufirði og geta gestir hans því notið útsýnis yfir höfnina og fylgst með sjómönnum landa afla af trillum sínum sem síðar gæti ratað á diska gestanna.

Markmið Hannes Boy er að veita viðskiptavinum sínum einstaka upplifun með hágæða mat og framúrskarandi þjónustu á hagstæðu verði. Hannes Boy notast eingöngu við ferskt hráefni sem einvala lið matreiðslumanna og þjóna útbúa og bera fram.

Hannes Boy dregur nafn sitt af látnum sjóara frá Siglufirði sem hélt mikið til við smábátahöfnina. Hannes var í miklu uppáhaldi hjá Siglfirðingum og barngóður mjög en viðurnefnið fékk hann við einkunnarorð sín „BOY“.

Hannes Boy er staðsettur að Gránugötu 23
Sími: 467-7730
Netfang: eldhus(at)raudka.is
Staðsettning Hannes Boy á korti

Heimasíðu Hannes Boy má nálgast hér

 


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst