100 ára afmæli skólahússins við Norðurgötu
Innsent efni.
100 ára afmæli.
Þann 18. desember er 100 ár síðan skólahúsið við Norðurgötu var tekið í notkun.
Af því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag og hafa opið hús frá kl. 11.00 – 13.00. Börnin munu syngja fyrir gesti kl. 11.15 og 12.30.
Þennan sama dag var rafveitan gangsett og voru hátíðarhöld í tilefni þessara atburða í skólanum þann 18. desember 1913. Nemendur í 1. – 4. bekk hafa verið að læra um gamla tímann, hvernig skólahald var og 18. des. fara þau í kennstund á Síldarminjasafnið þar sem tekið verður á móti þeim og börnin fá fræðslu um gömlu ljósavélina.
Til að lifa sig inn í gamla tímann verður slökkt um stund á götulýsingu á Snorragötu og á Eyrinni.
Mynd við frétt er númer 31-nn-322-01 í Ljósmyndasafni Siglujarðar. Myndina tók Vigfús Guðbrandsson.
Gaman væri að sem flestir gætu lagt leið sína í skólann til þess að fagna með okkur og rifja upp gamlar endurminningar.
Kveðja, nemendur og starfsfólk við Norðurgötu.
Athugasemdir