17. júní

17. júní Fjöldi fólks naut veðurblíðunnar og fagnaði þjóðhátíðardeginum í miðbæmum í gær. Það gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi en fyrst og fremst

Fréttir

17. júní

Hátíðarhöldin á 17. júní. Ljósmyndari; Bergþór Morthens
Hátíðarhöldin á 17. júní. Ljósmyndari; Bergþór Morthens
Fjöldi fólks naut veðurblíðunnar og fagnaði þjóðhátíðardeginum í miðbæmum í gær. Það gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi en fyrst og fremst var fólk saman komið til þess að halda daginn hátíðlegan.
Hópur  fólks gekk í skrúðgöngu frá kirkjunni að Hvanneyri þar sem nýstúdentar
leggja blómsveig að leiði sr. Bjarna Þorsteinssonar og Sigríðar Blöndal.

Þá fylgdust margir með hátíðarræðu, ávarpi Fjallkonu og tónlistaratriðum í miðbænum. Börnin skemmtu sér á trampolíni og með sippubönd.

Margir fengu blöðrur og sælgæti og upplifðu sannkallaða þjóðhátíðarstemmingu. Veðrið var ekki af verri endanum, sól og hlýtt í veðri.

Að dagskrá lokinni á Torginu var haldið á Gervigrasvöllinn  á Skólabalanum þar sem
hinn árlegi kappleikur 7. flokks KS, Norðurbær – Suðurbær, fór fram.

Leikgleðin skein úr andlitum keppenda og flottir taktar sem krakkarnir sýndu á knattspyrnuvellinum.

Að leik loknum fór fram óopinber landsleikur Íslands og Englands en þar léku ,,Oldboys“ á móti þjálfarateymi Bolton Akademíunar.

Frábær dagur og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Fleiri myndir hér








Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst