3G á Siglufirði
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 17.09.2009 | 12:00 | | Lestrar 476 | Athugasemdir ( )
3G ÞJÓNUSTA SÍMANS Á SIGLUFIRÐI
YFIR 90% LANDSMANNA Á 3G ÞJÓNUSTUSVÆÐI SÍMANS
Síminn hefur lokið við uppsetningu á 3G sendum á Siglufirði. Með því bætist Siglufjörður við þá fjölmörgu staði sem í dag eru skilgreindir sem 3G þjónustusvæði Símans. Þetta felur það í sér að viðskiptavinum Símans stendur til boða ný og skemmtileg þjónusta eins og myndsímtal, sjónvarp í símann, netið í símann ásamt því að geta komist í háhraðanetsamband í fartölvu með Netlykli Símans hvar sem er innan þjónustusvæðis 3G netsins. 3G farsímanetið er skref til framtíðar í fjarskiptum og nær það nú til yfir 90% landsmanna á þjónustusvæði Símans. Möguleikarnir sem 3G farsímaþjónustan býður upp á er margföld viðbót við möguleikana í hefðbundnu farsímaneti. Bæði þjónar netið sem almenn farsímaþjónusta ásamt því að vera öflug aðgangsleið inn á netið, bæði með farsímanum og í gegnum fartölvu með 3G Netlykli. Nánari upplýsingar veitir Margrét Stefánsdóttir forstöðumaður á samskiptasviði Skipta s. 8927163

Athugasemdir