800 undirskriftir á einum sólarhring
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 01.10.2009 | 18:00 | | Lestrar 964 | Athugasemdir ( )
Í fréttatilkynningu frá þeim hópi sem safnar mótmælum gegn því að Andrési Magnússyni var sagt upp stöðu yfirlæknis á Siglufirði og því hvernig staðið var að ráðningum yfirmanna Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar kemur fram að á einum sólarhring hafa um 800 undirskriftir safnast og enn á eftir að hitta fólk sem óskað hefur eftir því að vera með á listanum.
Það sýnir skýrt hug Siglfirðinga til málsins að á einum sólarhring skuli 800 manns taka þátt í þessari undirskriftasöfnun. Hópurinn stefnir að því að afhenda nýjum heilbrigðisráðherra Álfheiði Ingadóttur undirskriftirnar fljótlega að lokinni söfnun.
Af gefnu tilefni vill hópurinn minna á yfirlýsingu Andrésar sem birtist á siglo.is í gær.

Athugasemdir