“Lýðveldið á planinu”

“Lýðveldið á planinu” Í dag kl. 17:00 verður opnuð listasýningin “Lýðveldið á planinu” í Gallerí Gránu. Sýningin samanstendur af fjölbreyttum verkum

Fréttir

“Lýðveldið á planinu”

Listakonurnar á Gránulofti
Listakonurnar á Gránulofti
Í dag kl. 17:00 verður opnuð listasýningin “Lýðveldið á planinu” í Gallerí Gránu. Sýningin samanstendur af fjölbreyttum verkum listakvenna sem sýnt hafa verk sín víðsvegar um landið. En verkin tengjast hugmyndum um íslenska lýðveldið. Í gær unnu þær hörðum höndum á Gránuloftinu við að koma upp sýningunni, en þar má finna málverk, skúlptúra, myndskyggnur, ljósmyndir og draumagildrur fyrir martraðir Íslendinga svo eitthvað sé nefnt.


Í tilefni af sýningunni í Gránu verður sýnd listræn heimildamynd frá ferðum tveggja listakvennanna um slóðir afkomenda vesturfaranna í Manitobafylki í Kanada og Norður-Dakóta.
Bæjarbúar sem og aðrir gestir eru hvattir til að mæta á opnunina í dag þar sem boðið verður upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst