Abbý opnar vinnustofu sína
Síðastliðinn föstudag opnaði Abbý vinnustofu sína þar sem ný verk voru til sýnis. Glæsilegar myndir byggðar á síldarárunum voru til sýnis ásamt ýmsum öðrum munum úr safni Abbýar.
Þegar Siglo.is mætti á staðinn var fjöldi gesta á staðnum sem dáðist af því sem Abbý hafi uppá að bjóða enda verkin glæsileg og vel unnin. Ekki vantaði heldur kræsingarnar sem féllu vel í kramið hjá gestum Abbýar.
Siglo.is óskar Abbý til hamingju með opnunina og hvetur alla sem leið eiga hjá að reka inn nefið.






Athugasemdir