Að finna sjálfan sig

Að finna sjálfan sig Lífið á Siglufirði einskorðast ekki aðeins við fast land og Siglufjörð sjálfan. Siglfirðinga er víða að finna og eru þeir til að

Fréttir

Að finna sjálfan sig

Kokkurinn góði
Kokkurinn góði
Lífið á Siglufirði einskorðast ekki aðeins við fast land og Siglufjörð sjálfan. Siglfirðinga er víða að finna og eru þeir til að mynda margir sem sækja sjóinn umhverfis landið.

Áhöfnin á Siglunesi SI-70 stendur í ströngu þessa dagana við rækjuveiðar, en skipverjar gefa sér þó tíma til þess að njóta lífsins og sjá spaugilegu hliðarnar á tilverunni.

Skipstjórinn á Siglunesinu, Pétur Bjarnason hafði samband við fréttamann siglo.is og sendi þessa skemmtilegu mynd af lífinu um borð.

Það eru mörg dæmi þess að menn taka sé frí frá sínu "venjulega" lífi og skelli sér á sjó til þess að breyta aðeins til í lífinu, jafnvel reyna að enduruppgötva sjálfan sig.

Einn slíkur er nú kokkur um borð á Siglunesinu, en það þekkja sennilega flestir hann í öðru hlutverki en matreiðslu á rækjuveiðiskipi.

Á myndinni má sjá hann í fullum skrúða að leita að mataruppskriftum á internetinu.

Hvort hann hafi fundið sjálfan sig í leiðinni er svo annað mál en maturinn um borð er víst með eindæmum ljúffengur.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst