Aðalfundur félags málmiðnaðarmanna.

Aðalfundur félags málmiðnaðarmanna. Ályktanir sem samþykktar voru á aðalfundi Félags málmiðnaðarmanna, Akureyri: Ályktun um atvinnumál, alyktun um

Fréttir

Aðalfundur félags málmiðnaðarmanna.

Ályktanir sem samþykktar voru á aðalfundi Félags málmiðnaðarmanna, Akureyri: Ályktun um atvinnumál, alyktun um Vaðlaheiðargöng, ályktun um Reykjavíkurflugvöll, ályktun um björgunarþyrlur, ályktun umm Sjúkrahúsið á Akureyri, ályktun um skyndihjálp.

Ályktun um atvinnumál

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri haldinn 25. febrúar 2012 lýsir yfir áhyggjum af  miklu og viðvarandi atvinnuleysi.

Í janúar á þessu ári voru að jafnaði 775 einstaklingar án atvinnu á Norðurlandi eystra, 434 karlar og 341 kona. Þrátt fyrir að hlutfallslegt atvinnuleysi sé minna í fjórðungnum en á landinu öllu eru tölurnar allt of háar og mikið áhyggjuefni.

Aðalfundurinn bendir á að á Norðurlandi eru margir álitlegir fjárfestingarkostir, sem nánast bíða þess að verða hrint í framkvæmd.

Félagið minnir stjórnvöld á að við gerð síðustu kjarasamninga var mjög rætt um að stuðla að auknum fjárfestingum til þess að leggja grunn að

auknum hagvexti og atvinnu.Í þingeyjarsýslum eru virkjunarkostir fyrir orkufrekan iðnað og Bakki við Húsavík er raunhæfur kostur fyrir slíkan iðnað

Aðalfundurinn skorar á ríkisstjórn Íslands, sveitarfélög, samtök atvinnulífsins og samtök launþega að snúa bökum saman og sigrast á atvinnuleysinu hér á landi. Því fyrr, því betra

                                          Ályktun um Reykjavíkurflugvöll

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, haldinn 25. febrúar 2012 beinir því eindregið til stjórnvalda og borgaryfirvalda að núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð til frambúðar.

Verði hugmyndir um að flytja miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli að veruleika er einsýnt að mikil afturför verður í bráðaþjónustu við þá landsmenn sem þurfa að komast til Landsspílana- háskólasjúkrahúss, með sjúkraflugi. 

Mikilvægi nálægðar flugvallarins og sjúkrahússins er ótvírætt og getur skipt sköpum, auk þess sem flugvöllurinn gegnir lykilhlutverki í öryggisneti landsins.

Aðalfundurinn minnir á að í höfuðborginni eru staðsettar höfuðstöðvar stjórnsýslu landsins, auk flestra opinberra stofnana landsins á sviði viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sú staðreynd kallar á greiðar samgöngur til og frá höfuðborginni, eigi Reykjavík að geta staðið undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna.

Flutningur á miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli er því óviðunandi  afturför.

 Ályktun um gerð Vaðalheiðarganga

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna, haldinn á Akureyri 25. febrúar 2012 styður eindregið gerð Vaðalheiðarganga og telur fundurinn mikilvægt að framkvæmdir hefjist sem fyrst, enda ljóst að gerð ganganna styrki  atvinnulífið við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum og bæti þar með búsetuskilyrði til muna.

Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld til að standa við bakið á heimaaðilum, enda liggi fyrir fullnægjandi gögn um kostnað og rekstur ganganna.

Bent er sérstaklega á að Vaðlaheiðargöng koma til með að auka til muna öryggi vegfarenda og verða góð samgöngubót.

Aðalfundurinn fagnar samstöðu sveitarfélaga og stofnana á svæðinu um fjárhagslegan stuðning við verkefnið  og óskar jafnframt eftir málefnalegum umræðum um þetta brýna hagsmunamál allra lansmanna.

 Ályktun um mikilvægi Sjúkrahússins á Akureyri

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, haldinn 25.02.2012 skorar á stjórnvöld að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri.

Í kjölfar skertra fjárframlaga hins opinbera til stofnunarinnar á undanförnum árum er ljóst að veruleg þjónustuskerðing er staðreynd, sem bitnar fyrst og fremst á sjúklingum sem búsettir eru á norður- og austurlandi.

Ekki er hægt að tala um hagræðingu í þessu samhengi.

Hætta er á að í kjölfar stórlega skertra fjárveitinga glatist sérhæfing og sérþekking, auk þess sem niðurskurðurinn rýrir augljóslega búsetuskilyrði og veltir auknum kostnaði yfir á sjúkinga.

Aðalfundurinn minnir stjórnvöld á mikilvægi Sjúkrahússins á Akureyri sem þjónustustofnunar fyrir Norðausturland, kennslusjúkrahuss og aðalvarasjúkrahúss fyrir landið allt.

Aðalfundurinn dregur í efa að mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu skili tilætluðum árangri til lengri tíma litið. Því þurfi stjórnvöld að marka sér nýja stefnu í heilbrigðismálum, þar sem tillit verði tekið til fleiri þátta en fjárhagslegra.

Ályktun um björgunarþyrlur

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri haldinn 25. febrúar 2012 skorar á ríkisstjórn Íslands að efla nú þegar þyrlukost Landhelgisgæslu Íslands, fundurinn telur nayuðsynlegt að keyptar verði tvær þyrlur til viðbótar núverandi flota.

Samkvæmt samantekt Landhelgisgæslu Íslands fyrir tímabilið 1994 til 2010 hefur 1513 einstaklingum verið bjargað með flugförum LHG. Þar af var 361 einstaklingi bjargað á sjó og 1152 í landi. Í yfir 70 % tilvika er talið að þyrla hafi skipt sköpum.

Aðalfundurinn telur nauðsynlegt að þyrlukostur LHG sé það öflugur og traustur að ávallt séu tvær þyrlur til reiðu annan sólarhringinn er sinni leit og björgun, sjúkraflutningum og öðrum verkefnum til lands og sjós. Til að hafa tvær þyrlur til reiðu allan sólarhringinn hring þarf minnst 4 þyrlur í rekstri og tvær vaktir.

Fyrir landsmenn alla er það lífsspursmál að tækjakostur Landshelgisgæslu Íslands sé viðunandi.

 Ályktun um skyndihjálp

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri haldinn laugardaginn 25. febrúar árið 2012 felur stjórn félagsins að kanna í samstarfi við vinnuveitendur félgsmanna hvort ekki sé hægt í samstarfi við Rauðakrossinn að halda skyndihjálparnámskeið fyrir félagsmenn. Tilgangur verkefnisins er að gera félagsmenn hæfari til að bregðast við ef óhapp ber að höndum.

Texti: Aðsendur

Mynd: Ásgrímur Örn Hallgrímsson.

 

 

 

 

 


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst