Aðeins að rofa til á Ólafsfirði
Axel Pétur sendi okkur mynd rétt í þessu á Siglo.is sem sýnir veðrið á Ólafsfirði. Að hans sögn var það mun verra rétt áðan þegar það sást vart út úr augum.
„Það þurfti að setja á sig skíðagleraugu og lambhússettu bara til að skjótast milli húsa. Nú sést hinsvegar vel uppí kletta“ segir Axel Pétur.
Á MBL er fjallað um veðrið í Fjallabyggð í dag en það mun vera mun verra á Ólafsfirði en á Sigló.
Þar segir að "mikil snjókoma (sé) á Ólafsfirði og rok samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á staðnum og ekkert ferðaveður. Að sögn lögreglumanns á vakt er skyggni lítið á staðnum og sést varla á milli húsa. Töluvert er af snjó í bænum sem kom að mestu í nótt. Veðrið hefur þó ekki sett alvarleg strik í reikninginn hjá bæjarbúum enn sem komið er. Veðrið á Siglufirði er að sama skapi slæmt en mun þó vera talsvert skárra en á Ólafsfirði".
Mikill snjór á Ólafsfirði. Ljósmynd: Axel Pétur
Athugasemdir