Aðventuhátíð í Siglufjarðarkirkju síðasta sunnudag. Myndir og myndband
sksiglo.is | Almennt | 13.12.2013 | 12:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 368 | Athugasemdir ( )
Það var hátíðarstemmning í Siglufjarðarkirkju
síðastliðinn sunnudag.
Séra Sigurður leiddi þessa glæsilegu
Aðventuhátíð.
Ræðumaður kvöldsins var Guðni Brynjólfur Ásgeirsson en hann er
jafnframt sá yngsti sem flutt hefur hugleiðingu á Aðventuhátíð, fermdist vorið 2007 og er því einungis tvítugur að
aldri.
Fermingarbörn tóku virkan þátt í Aðventuhátíðinni
með því að lesa jólaguðspjallið, sem er að finna í Lúkasarguðspjalli. Einnig las og kvað Þórarinn Hannesson
jólaljóð úr nýrri bók sinni.
Kirkjukórinn söng lög og þeir Þorsteinn Bjarnason, Stefán
Friðriksson, Þorsteinn Sveinsson, Sigurður Hlöðvesson og Rodrigo J. Thomas spiluðu lög fyrir gesti og gerðu það listavel og settu punktinn yfir i-ið
í lok glæsilegrar Aðventuhátíðar.
Guðni Brynjólfur Ásgeirsson var ræðumaður kvöldsins
Þórarinn Hannesson las upp úr nýrri ljóðabók sem hann var að gefa út og heitir "Um
jólin".
Fermingarbörn að lesa upp jólaguðspjallið úr Lúkasarguðspjalli.
Kirkjukórinn
Kirkjukórinn
Kirkjukórinn
Séra Sigurður Ægisson
Hér er Stebbi Fidda að athuga hvort ég sé að gera eitthvað af mér. Og svo myndband af strákunum spila svona líka ljómandi fallega.




Athugasemdir