Æfingin skapar meistarann
sksiglo.is | Almennt | 23.08.2010 | 22:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 518 | Athugasemdir ( )
Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum þá var Siglfirðingnum Bjarna Mark Antonssyni ásamt Sauðkrækingnum Hólmari Skúlasyni boðið á landsliðsæfingar hjá undir 17 ára landsliðinu. Auk þeirra var Hermanni Inga Jónssyni boðið en hann komst ekki vegna ferðalaga erlendis.
Skemmst er frá því að segja að strákarnir stóðu sig með prýði og öðluðust þeir mikla og dýrmæta reynslu.
Þetta var mikill heiður fyrir strákana og greinilegt að góður árangur 3. flokks KS/Tindastóll/Hvöt hefur vakið athygli þeirra hjá KSÍ. Það er ákveðið afrek útaf fyrir sig því á stundum virðist vera sem sýn þeirra nái ekki lengra út á land en upp Ártúnsbrekkuna.
Æfingarnar fóru þannig fram að 64 strákum var boðið til æfinga þessa helgi á Laugarvatni og var þeim skipt í fimm lið. Þessum fimm liðum var svo stýrt af þjálfurum sem vakið hafa athygli fyrir góðan árangur. Einn þeirra var Mark Duffield, þjálfari 3. flokks KS og stýrði hann æfingum hjá einu liðinu um helgina.
Liðið sem Mark stýrði vann alla sína leiki um helgina sem er frábær árangur og hljóta menn hjá KSÍ að vera farnir að lýta hýru auga til hans.
Aðspurður sagði Mark helgina hafa verið frábæra í alla staði og að strákarnir hefðu staðið sig með miklum sóma. Þetta var þó mikil vinna, svakalega skemmtilegt og mikil skipulagsvinna, það gafst því lítill tími til annars en knattspyrnu.
Þriðji flokkur KS/Tindastóll/Hvöt spilar á laugardaginn úrslitaleik við lið Fjarðarbyggðar um sæti í úrslitum Íslandsmótsins, en aðeins eitt lið fær sæti í úrslitum af öllu norður og austurlandi.
Liðinu nægir jafntefli í leiknum til þess að komast í úrslit. Það er greinilegt að þessi mikla vinna sem strákarnir og þjálfarinn hafa lagt á sig er að skila sér. Það hljómar kannski eins og klisja en æfingin skapar svo sannarlega meistarann.

Eitthvað voru þeir kuldalegir að sjá þjálfararnir á þessari mynd, en Mark Duffield kallar ekki allt ömmu sína og hélt sig við stuttbuxurnar.

Einn landsliðshópurinn sem æfði og spilaði á Laugarvatni, Bjarni Mark er í fremstu röð, lengst til vinstri.

Athugasemdir