Álftapar með fimm unga
sksiglo.is | Almennt | 04.09.2010 | 14:28 | Bergþór Morthens | Lestrar 155 | Athugasemdir ( )
Þetta glæsilega Álftapar synti tignarlega um með fimm unga sína á Langeyrartjörninni.
Steingrímur Kristinsson náði þessari góðu mynd af fjölskyldunni þar auk þess sem það má sjá skemmtilegt myndband.
Álftir eru sannarlega glæsilegir fuglar og bæjarprýði. Á heimasíðunni wikipedia má finna ýmsan fróðleik um Álftir en þar kemur m.a. fram að Álft eða svanur (fræðiheiti: Cygnus cygnus) er stór fugl af andaætt og stærsti fugl Íslands.
Hún er sundönd og er alfriðuð enda stofninn ekki stór. Íslenskar álftir dvelja flestar á Bretlandseyjum yfir vetrarmánuðina en kringum tíundi hluti hefur vetursetu á Íslandi.
Samkvæmt talningum hefur álftastofninn verið frá 15.000 upp í 19.000 fuglar hin síðari ár og varpstofninn hér á landi mun einungis vera um 2.500 til 3.000 pör. Síðsumars fella fuglarnir fjaðrirnar og eru þá ófleygir

Athugasemdir