Allinn skartar sínu fegursta

Allinn skartar sínu fegursta Allinn skartar núna sínu fegursta eftir töluverðar endurbætur. Vel var að verkinu staðið og er húsið glæsilegt á að líta og

Fréttir

Allinn skartar sínu fegursta

Allinn nýmálaður og flottur
Allinn nýmálaður og flottur
Allinn skartar núna sínu fegursta eftir töluverðar endurbætur. Vel var að verkinu staðið og er húsið glæsilegt á að líta og til mikillar prýði.

Allinn sem staðsettur er í sögufrægu húsi í miðbæ Siglufjarðar var farinn að láta verulega á sjá. Fyrr í sumar var farið í steypuviðgerðir á húsinu og nú er búið að mála húsið og er útkoman glæsileg.

Þessi framkvæmd setur  mikinn svip á húsið og miðbæinn í heild sinni. Til stendur hjá fleiri aðilum í miðbænum að mála húsin sín þannig að heildarsvipur miðbæjarins verður allt annar og betri.

Allar svona framkvæmdir hjálpa til við að gera bæinn okkar meira aðlaðandi og eru þetta svo sannarlega góðar fréttir.

Málararnir eru nú á fullu og nýta tækifærið á meðan að ekki rignir og eru byrjaðir að mála bakaríið.

Það er greinilegt að Siglfirðingar eru í framkvæmdahug og  spennandi verður að fylgjast með þróun mála í bænum.



Húsið sem bakaríð er staðsett í er glæsilegt hús sem á eftir að njóta sín enn betur þegar búið er að mála það.




Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst