Allir fá þá eitthvað fallegt ...

Allir fá þá eitthvað fallegt ... Haraldur og Ólafur Marteinssynir standa í stórræðum þessa dagana en þeir eru að reisa nýtt hesthús í Siglufirði.

Fréttir

Allir fá þá eitthvað fallegt ...

Haraldur Marteinsson. Ljósm. EÞ
Haraldur Marteinsson. Ljósm. EÞ
Haraldur og Ólafur Marteinssynir standa í stórræðum þessa dagana en þeir eru að reisa nýtt hesthús í Siglufirði.

Í gær var reisugilli að góðum og gömlum sið og af því tilefni var Íslenska fánanum flaggað. Það á vafalítið eftir að fara vel um hrossin í nýju 126 m² húsi. Í nýja hesthúsinu sem er viðbygging sunnan við gamla hesthúsið, eru 8 stíur hver fyrir 2 hesta, og rúmast því 16 hestar í það heila í nýja húsinu, en í gamla hesthúsinu er pláss fyrir tólf hesta . Stefnt er að því að ljúka við bygginguna fyrir jól og það má því með sanni segja að hestarnir fái glæsilega jólagjöf þetta árið.


Það var margt um manninn þegar blaðamann Sksiglo bar að garði, en Berg ehf. sér um verkið,  smiðurinn Addi Gyðu var mættur á svæðið og einnig lögðu sjálfboðaliðar hönd á plóginn. Hönnun og burðarþol var í höndum Verkfræðistofu Siglufjarðar sf.  Fleiri myndir HÉR.



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst