Allt á kafi í Skarðinu
sksiglo.is | Almennt | 08.04.2010 | 15:55 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 479 | Athugasemdir ( )
Sigló.is brá sér í skarðið í morgun til að kanna aðstæður og skemmst var frá því að segja að snjórinn var svo mikill að fréttamaður þurfti frá að hverfa. Ljóst var að moka þyrfti fyrir fólksbíla og slyddujeppa svo þeir kæmust í Siglfirsku Alpana.
Er þetta mesti snjór sem verið hefur í Skarðinu í vetur og því óhætt að treysta á skíðafæri þar áfram næstu vikur. Gaman verður að sjá hversu margir eiga eftir að leggja leið sína í skarðið á næstu dögum en algengt er að dragi úr aðsókn eftir páska.
Athugasemdir