Allt frá sokkum til svartolíu
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 25.11.2009 | 12:00 | | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Elsta samfelda verslunarstarfsemi hér á Siglufirði er nú til húsa hjá Olís hér á Siglufirði en starfsemin byrjaði í mars 1928 segir Jón Andrés Hinriksson útibússtjóri. Inná skrifstofu Jóns er margt gamalla muna er tilheyra olíuversluninni frá fyrri tíð og fróðlegt var að heyra Jón lýsa þeim.
Þar á meðal er forláta BP skilti sem líklega er það eina í heiminum og reyndi útlendingur einn mikið til að fá það keypt. Gestagangur er mikill í búðinni hjá Jóni og Stefáni og ávallt heit á könnunni. Allir eru velkomnir og er búðin opin alla virka daga frá kl. 8 til 18.
Mikið er af munum frá fyrri tíð á skrifstofu Jóns.

Jón starir íbygginn útum gluggann.

Skemmtileg skilti frá fyrri tíð.

Stefán hefur starfað lengi hjá Olís en þó ekki frá 1928 sagði Jón en þarna má sjá Stefán með jólagjöf veiðimannsins á höfði sér.

Athugasemdir