Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 5. febrúar 2013

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 5. febrúar 2013 Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi. Þemað í

Fréttir

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 5. febrúar 2013

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi.

Þemað í ár er „Réttindi og ábyrgð á netinu ” og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.

Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda samstarfsnetið Insafe, og yfir 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið frá ýmsum hliðum.

Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu og sýnd í sjónvarpi næstu daga.

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst- og fjarskiptastofnun, Símann, Lenovo, Microsoft Íslandi  og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Diljá Helgadóttir og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.

Málþingið verður sent beint út á Netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT.


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst