Ályktun frá Framsóknarfélagi Fjallabyggðar á almennum félagsfundi 7. október 2010
Framsóknarfélag Fjallabyggðar fordæmir þá ákvörðun Ríkisstjórnar Íslands að færa í auknu mæli rekstur heilbrigðisstofnana frá hinum dreifðu byggðum. Aldrei áður hefur verið vegið jafn nærri íbúum smærri sveitarfélaga landsins hvað heilbrigðisþjónustu varðar.
Á meðan landsbyggðinni blæðir er fyrirhugað að hefja framkvæmdir við byggingu nýs hátæknisjúkrahúss fyrir marga tugi milljarða, en sjúkrahús á landsbyggðinni munu standa auð takist stjórnvöldum ætlunarverk sitt.
Kostnaður á hvert legurými er a.m.k. tvöfalt hærri á hátæknisjúkrahúsum en á sjúkrahúsum á landsbyggðinni. Kostnaður við sjúkraflutninga mun margfaldast, þjónusta mun skerðast og lífskjör í hinum dreifðu byggðum versna verulega, auk þeirra fjölda starfa sem flutt eru úr byggðalögunum.
Framsóknarfélag Fjallabyggðar fordæmir áherslur ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í heilbrigðismálum.




Athugasemdir