Anna Snorradóttir ánafnar Síldarminjasafninu Hlíðarhús

Anna Snorradóttir ánafnar Síldarminjasafninu Hlíðarhús Anna Snorradóttir hefur ánafnað Síldarminjasafninu Hlíðarhús. Húsið var byggt árið 1898 og hefur

Fréttir

Anna Snorradóttir ánafnar Síldarminjasafninu Hlíðarhús

Sverrir Sveinsson, Örlygur Kristfinnsson, Anna Snorradóttir og Guðmundur Skarphéðinsson
Sverrir Sveinsson, Örlygur Kristfinnsson, Anna Snorradóttir og Guðmundur Skarphéðinsson

Anna Snorradóttir hefur ánafnað Síldarminjasafninu Hlíðarhús. Húsið var byggt árið 1898 og hefur verið í eigu fjölskyldunnar í rúm 100 ár.

 

Húsinu fylgir innbú og fleira sem tengist sögu þess, t.d. húsgögn og bækur. Auk þess nokkur peningaupphæð sem samanstendur m.a. af framlagi frá Húsafriðunarnefnd, tryggingafé og gjöfum frá velgjörðarmönnum.

Þessi höfðinglega gjöf Önnu er til minningar um foreldra hennar, þau Snorra Stefánsson og Sigríði Jónsdóttur. Snorri flutti til Siglufjarðar ásamt foreldrum sínum 12 ára gamall og festu þau kaup á húsinu árið 1907. Húsið var stækkað tvisvar, 1924 og 1928, en þá tók það á sig núverandi mynd. Eins og mörgum Siglfirðingum er kunnugt varð Snorri seinna framkvæmdarstjóri í Síldarverksmiðju Siglufjarðarkaupstaðar. Hann bjó í húsinu þar til hann lést háaldraður árið 1987.

Saga Snorra og foreldra hans er fyrirmyndin að Sögu úr Síldarfirði eftir Örlyg Kristfinnsson. Sagan lýsir reynslu 12 ára drengs sem flytur frá Akureyri til Siglufjarðar ásamt fjölskyldu sinni 1907 þar sem ný og vonbjört framtíð beið þeirra. Nú þegar hefur sagan verið tekin upp sem hluti af íslenskukennslu barna í 8. bekk og hefur mælst vel fyrir.


Athugasemdir

29.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst