Arnar Ómarsson listamaður fjallar um Tengsl
Arnar Ómarsson listamaður mun fjalla um sýninguna sína Tengsl á laugardaginn n.k. í Alþýðuhúsinu klukkan 17:00. Það
verður heitt á könnunni og allir velkomnir.
Arnar lauk listnámi sínu í University of the Arts, London sumarið 2011 og hefur haldið sýningar síðan víða um evrópu. Arnar
ásamt öðrum stendur einnig fyrir Reitum, skapandi samstarfsverkefni á Siglufirði, sem haldið var í fyrsta sinn í fyrra en um árlegt verkefni er
að ræða. Hann notast við teikningar, innsetningar, myndbandsverk og ljósmyndun aðalega, en leggur einnig mikinn metnað í skipulagningu
menningarviðburða.
Ferkari upplýsingar um listamanninn má finna á heimasíðunni www.arnaromarsson.com.
Athugasemdir