Ásta Björg Pálmadóttir tekur viđ embćtti sveitarstjóra í Skagafirđi
Ásta Björg Pálmadóttir tók viđ lyklum af Ráđhúsinu á Sauđárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guđmundar Guđlaugssonar, sem ţó mun ađstođa Ástu viđ ađ kynnast starfinu til nćstu mánađarmóta.
Starfsfólk Ráđhússins tók á móti Ástu međ kökum á kaffistofunni og ţakkađi Ásta fyrir góđar móttökur og sagđist hlakka til ađ takast á viđ spennandi verkefni hjá sveitarfélaginu.
Ásta er fćdd og uppalin í Skagafirđi, hún sneri aftur í Skagafjörđ fyrir 13 árum eftir nám og störf í Reykjavík og síđan hefur hún m.a. starfađ hjá Fiskiđjunni á Sauđárkróki og nú síđast sem útibússtjóri Landsbankans á Sauđárkróki. Ásta er gift Ţór Jónssyni og eiga ţau ţrjú börn. Svölu 24 ára, Helgu 15 ára og Pálma 12 ára.
Sveitarfélagiđ býđur Ástu velkomna til starfa og ţakkar jafnframt Guđmundi Guđlaugssyni fyrir hans störf á síđustu árum.
Athugasemdir