Ástþór Árnason með listaverkasýningu í dag
sksiglo.is | Almennt | 05.10.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 384 | Athugasemdir ( )
Ástþór Árnason heldur listaverkasýningu í Bláa húsinu á Rauðku í dag. Sýningin hefst klukkan 12:00 og stendur til 18:00.
Flottar myndir hjá Ástþóri og ég mæli með því að þið kíkið við og hver veit nema að þið náið að næla ykkur í flott listaverk eftir þennan efnilega listamann.
Ég fékk að sjá nokkrar myndir hjá honum og að mínu mati eru þetta virkilega flottar myndir hjá Ástþóri og listform sem ég persónulega er mjög hrifinn af.
Athugasemdir