Athugasemd frá Andrési Magnússyni yfirlækni

Athugasemd frá Andrési Magnússyni yfirlækni Ég hefði kosið að málefni okkar yrðu rædd meðal starfsfólks, en ekki í fjölmiðlum. Þar sem Konráð Baldvinsson

Fréttir

Athugasemd frá Andrési Magnússyni yfirlækni

Ég hefði kosið að málefni okkar yrðu rædd meðal starfsfólks, en ekki í fjölmiðlum. Þar sem Konráð Baldvinsson hefur fjallað frjálslega í fjölmiðlum um tveggja manna samtöl, vil ég koma eftirfarandi á framfæri


Á fundi með starfsfólki þann 29. september kom Konráð með þá fullyrðingu að ég sæktist ekki eftir starfi framkvæmdastjóra lækninga. Ég greip strax fram í og leiðrétti Konráð að ég hefði boðist til að gefa starfið eftir til Ásgeirs Bjarnasonar á Ólafsfirði til þess að auðvelda sameiningu og halda jafnvægi milli bæjarhluta. Ég tók einnig fram að mér hefur aldrei verið boðin sú staða. Konráð mótmælti því ekki á fundinum, en kýs að túlka boð mitt um að Ásgeir fengi stöðuna á þann hátt að ég hafi ekki viljað hana.

Á fundinum kom einnig fram að Ásgeir verði áfram yfirlæknir á Ólafsfirði. Þetta hafði Konráð ekki kynnt mér áður og kom það mér á óvart. Í þessu felst sú mismunun að Ólafsfjarðarmegin heldur áfram staða yfirlæknis en á Siglufirði er staðan lögð niður. Allir yfirstjórnendur nema ég halda sinni stöðu eða fá stöðuhækkun.

Í ódagsettu og óundirrituðu uppsagnarbréfi er mér gefin 15 daga andmælaréttur. Mér er einnig gefin 10 daga frestur til þess að svara skriflega hvort ég vilji þiggja stöðu læknis eftir sameiningu. Ég bað Konráð um upplýsingar um hvernig stöðu hann væri að bjóða mér, en hann hefur ekki svarað þeirri beiðni. Það er því rangt sem Konráð sagði á fundi starfsmanna að búið væri að ráða mig sem lækni við nýja stofnun, enda gerði ég athugasemdir við það á fundinum.

Síðustu dagana hef ég og fjölskylda mín fundið mikinn stuðning frá starfsfólki og Siglfirðingum nær og fjær. Fyrir það er ég mjög þakklátur.

Andrés Magnússon yfirlæknir.



Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst