Aukin verkefni hjá Hvanndölum
Hvanndalir ehf. hóf starfssemi sína á Siglufirði árið 2006 og er ört stækkandi fyrirtæki í Fjallabyggð. Fyrirtækið sinnir bókhaldsþjónustu fyrir hin ýmsu fyrirtæki ásamt því að reka úthringiver fyrir Momentum greiðslu og innheimtuþjónustu. Úthringiverið hóf starfssemi í nóvember 2009.
Að sögn Guðnýjar Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Hvanndala, hefur allt gengið vonum framar síðustu misseri og er hún vongóð um að fyrirtækið haldi áfram að stækka og bæta við sig nýjum verkefnum. Í dag eru 5 stöðugildi hjá fyrirtækinu og stefnum við að því að auka um eina manneskju á allra næstu dögum þar sem ný og spennandi verkefni voru að bætast við, segir hún og skýtur inní að áhugasamir einstaklingar haft samband við sig í síma 698-1714.
Hvanndalir ehf. er staðsett í húsnæði SPS en miklar endurbætur urðu á 3 hæð hússins þegar nýjar skrifstofur úthringiversis voru teknar í notkun.



Athugasemdir