Bæjarlistamaður Fjallabyggðar

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar Föstudaginn 2. mars tilnefnum við bæjarlistamann í þriðja sinn. Bæjarlistamaður er tilnefndur til eins árs og miðast

Fréttir

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar Guðrún Þórisdóttir
Bæjarlistamaður Fjallabyggðar Guðrún Þórisdóttir

Föstudaginn 2. mars tilnefnum við bæjarlistamann í þriðja sinn. Bæjarlistamaður er tilnefndur til eins árs og miðast útnefningin við almannaksárið. Þeir bæjarlistamenn sem Fjallabyggð hefur átt fram til þessa eru: Bergþór Morthens og Örlygur Kristfinnsson.

Í upphafi vil ég segja að til að okkur farnist vel sem einstaklingum og í samfélagi skipti máli að markmið okkar samræmist þeim gildum sem við skynjum, sköpum og virðum í andlegu lífi okkar. Þegar harnar á dalnum og flestir velta fyrir sér hverri krónu er nauðsynlegt að hlú að hinum andlega veruleika og lífsgildum og þurfum við að eiga samræðu um hver þeirra við viljum hafa í hávegum.

Ísleifur Konráðsson listmálari sagði: 

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin. 

Þetta á svo sannarlega við um þann bæjarlistamann sem við tilnefnum hér í dag.

Guðrún Þórisdóttir – eða Garún - er fædd í Reykjavík 1971. Eins og hún sjálf segir frá er hún frumburður föðurs og örverpi móðurs, eða með öðrum orðum “frumvarp”!  Hún er í sambúð með Halldóri Guðmundssyni og eiga þau soninn Viljar sem er á 9 ári.

Garún útskrifaðist úr Myndlistaskóla Akureyrar árið 1994 í fagurlistadeild og hefur unnið óslitið að list sinni síðan. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis á undanförnum árum. Einnig var hún gestalistamaður í Gmund Austurríki árið 1996.

Garún gerir ekki upp á milli efna við listsköpun sína þó hún vinni að mestu með olíuliti á striga þá notast hún líka við blandaða tækni. Lífið og tilveran frá sjónarhorni konu er mest áberandi í listsköpun Garúnar enda má finna þær í flestum hennar verkum. Hún túlkar í verkum sínum góðar og slæmar upplifanir, óskir og drauma, sorgir og örvæntingu og væntingar og vonir í gegnum hugarheim kvenna.

Garún er mikið náttúrubarn og kemur það sterkt fram í listsköpun hennar. Hún hefur sjálf sagt að náttúran tali til hennar með sínum dulmagnaða krafti og ljósaskiptum.

Í raun eru verkin hennar bæði jarðnesk og ójarðnesk i fegurð sinni, gjarnan skýrar línur, staðar og tímaleysi, rökfærsla á eigin forsendum.  Garún hefur skapað sér sérstakan og persónulegan stíl sem einkennist af frumlegri og oft óhefðbundinni efnismerðferð og djarfri útfærslu. 

Verkin hennar Garúnar má sjá í ýmsum stofnunum og fyrirtækjum m.a. í Sjöfn á Akureyri, Fjallabyggð, Sparisjóði Ólafsfjarðar, Ramma og Menntaskólanum á Tröllaskaga. Í bænum okkar Fjallabyggð eru mörg gallerí sem skipa veglega sess í menningarlífi okkar og hafa mikið gildi í ferðaþjónustunni. Garún rekur eitt slíkt samhliða vinnustofu sinni að Aðalgötu 7 hér í Ólafsfirði.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður menninganefndar Fjallabuggðar

Fráfarandi listamaður Örlygur Kristfinnsson


F.h. menninganefndar Fjallabyggðar

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

Myndir: GJS


Athugasemdir

26.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst