Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2011
fjallabyggð.is | Almennt | 01.02.2011 | 09:00 | Helga Sigurbjörnsdóttir | Lestrar 393 | Athugasemdir ( )
Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og / eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011.
Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamönnum eða kórum og leikfélögum.
Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa.
Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli.
Slík nafnbót er auglýsing á listamanninum og listamanninum og sveitarfélaginu.
Styrkur til bæjarlistamanns 2011 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps.
Umsóknir skulu berast fyrir 2. febrúar 2011 til Karitasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa, Ólafsvegi 4, 625, Ólafsfirði, sími 464 9200.
Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar og eru listamenn hvattir til að kynna sér þær.
Athugasemdir