Bás bifreiðaverkstæði

Bás bifreiðaverkstæði Hilmar Zophoníasson og Hilmar Hreiðars voru voru að braza í nokkuð óvenjulegri viðgerð á Jeep Cherokee. Ég var frekar hissa á því að

Fréttir

Bás bifreiðaverkstæði

Ég kom við á Bás bifreiðaverkstæði og tók létt spjall við strákana.

 
Hilmar Zophoníasson og Hilmar Hreiðars voru voru að braza í nokkuð óvenjulegri viðgerð á Jeep Cherokee. Ég var frekar hissa á því að sjá Jeep inn á verkstæði. Ég hef persónulega átt nokkra Jeep bíla og man hreinlega ekki eftir að nokkur þeirra hafi bilað, nokkurn tímann, en það er náttúrlega allt annað mál. 
 
 Það er búið að vera fínt að gera hjá strákunum og þeir voru yfir sig glaðir með að sjá mig. Hilmar Hreiðars var með óskir um uppstillingu og bað mig um að taka eina svona mynd, og svo eina svona, og svo eina svona og svona og svona hélt þetta áfram í dágóða stund. Ég þóttist taka myndir af honum í hinum og þessum uppstillingum þar sem hann var með hin ýmsu verkfæri í hönd.  Hann var eiginlega að stýra mér í myndatökunni allan tímann sem ég stoppaði þarna. Hann vildi nefnilega að það sæist sem bezt hver væri verkstjórinn á staðnum þó svo að ég hafi vitað betur.
 
 Hilmar Zophoníasson var þarna að sjálfsögðu líka , en hann var að vinna allan tímann og ég svosem vissi það að hann væri alvaldur yfir þessu öllu. En sökum þess hve Hilmar Soph er yfivegaður maður lofaði hann Hilmari Hreiðars að romsa þessu öllu út úr sér.
 
Flott verkstæði, flott þjónusta og flottir kallar.
 
bas
Alveg hreint á kafi.
 
bas
Hilmar í uppstillingu.
 
bas
Hilmar Z og Hilmar H.
 
bas
 
bas
 
bas
 
bas
 
 

Athugasemdir

03.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst