Bergþór og Halldór
sksiglo.is | Almennt | 28.07.2011 | 16:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 393 | Athugasemdir ( )
Heimilisfólk
að Aðalgötu 15 og 18 hefur lengi langað að skreyta umhverfi sitt í
tilefni Síldarævintýris og hafa þá haft í huga rómantík horfinna tíma
þegar að síldarpilsin og gamaldags undirföt héngu á snúrum og húsveggjum
um allan bæ.
Þetta er ákveðinn gjörningur sem gaman er að prófa og hver veit nema að þetta hvetji fleiri til þess að skreyta heima hjá sér eða gera gera eitthvað skemmtilegt til þess að lífga upp á tilveruna, þetta er jú hátíðin okkar bæjarbúa og um að gera að taka virkan þátt.
Það kennir ýmissa grasa á þvottasnúrunni góðu og tóku íbúar á eyrinni vel í þetta framtak og lánuðu margar dýrindisflíkur í gjörninginn.
Fátt er heimsborgarlegra en þvottasnúrur hangandi yfir götur og vekur þetta örugglega upp minningar um sólbökuð þorp við miðjarðarhafið.
Það er einlæg ósk íbúanna á Eyrinni að þetta hvetji fleiri til þess að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni hátíðarinnar.

Bestu kveðjur,
Bergþór

Athugasemdir