Salon-sýning

Salon-sýning Síðasta sýningarhelgi í Gallerý Rauðku er nú um helgina og hverfa myndir Pauls Lajeunesse nú til bandaríkjanna. Bergþór Morthens hefur

Fréttir

Salon-sýning

Myndir: Bergþórs Morteins
Myndir: Bergþórs Morteins

Síðasta sýningarhelgi í Gallerý Rauðku er nú um helgina og hverfa myndir Pauls Lajeunesse nú til bandaríkjanna. Bergþór Morthens hefur því ákveðið að opna ,,nýja“ sýningu í kvöld kl. 20:00.

Verður sú sýning í anda Salon sýninganna og stendur aðeins þessa einu helgi. Það sem einkennir sýninguna er að hún er sett fram í anda salon-sýninga, þar sem verkin þekja alla veggi sýningarrýmisins, frá gólfi og upp í loft, án nokkurrar reglu og byggir þannig á hefð salon-sýninga í París á nítjándu öld.

Sýningin byggir ekki á ákveðnu þema, tímaskeiðum, viðfangsefnum eða tímaröð. Sýningin opnar kl. 20:00 í kvöld og er tilvalið að skella sér á myndlistarsýningu sem forrétt og bregða sér svo á stórtónleika Gylfa Ægis, Rúnars Þórs og Megas sem munu spila á Kaffi Rauðku.


Texti og mynd: Aðsent.


Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst