Björn Jörundur með tónleika
sksiglo.is | Almennt | 27.07.2010 | 00:01 | Bergþór Morthens | Lestrar 516 | Athugasemdir ( )
Björn Jörundur Friðbjörnsson tónlistarmaðurinn góðkunni tók nokkra vel þekkta slagara fyrir fjölda fólks á Rauðkutorgi síðastliðinn sunnudag.
Björn Jörund þarf að sjálfsögðu ekkert að kynna fyrir Siglfirðingum enda á hann ættir að rekja hingað. Sönvarinn góðkunni renndi í gegnum hvern slagarann á fætur öðrum enda um auðugan garð að gresja þegar kemur að tónlistinni hans og margar perlunnar sem eftir hann liggja.
Gestir Rauðkutorgs kunnu vel að meta flutning Björns Jörundar og stemningin frábær. Siglfirðingar og aðrir gestir bæjarins mega búast við góðri Trúbadorastemningu næstu dagana enda munu margir flottir tónlistarmenn stíga á stokk á Rauðkutorgi sem og öðrum stöðum í bænum.

Björn Jörundur var flottur á tónleikunum

Athugasemdir