Minningarmót í blaki á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 23.01.2012 | 10:15 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 707 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 21. janúar var haldið blakmót á Siglufirði tileinkað minningu Birgis Guðlaugssonar sem var einn af stofnendum öldungablaksins á Siglufirði fyrir um fjörtíu árum. Er þetta fimmta árið í röð sem mótið er haldið.
Þetta mótið er einstaklingskeppni þar sem dregið er í lið fyrir hverja hrinu. Tæplega fimmtíu keppendur úr blakfélögunum á Siglufirði tóku þátt, bæði karlar og konur. Sigurvegari mótsins var Gunnlaugur Stefán Guðleifsson með fullt hús stiga.
Um kvöldið var svo komið saman í Þormóðsbúð og notið góðra veitinga. Auk þess voru afhent verðlaun og að sjálfsögðu sungið fram eftir kvöldi að hætti blakara.

Texti og myndir: GJS

Athugasemdir