Blómarósirnar í Apóteki Siglufjarðar
sksiglo.is | Almennt | 07.11.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1043 | Athugasemdir ( )
Ég kom við hjá blómarósunum í Siglufjarðar Apóteki fyrir stuttu síðan.
Starfsstúlkurnar tóku alveg sérdeilis vel á móti mér og
sýndu mér allra handa smirsl, krem, ilmefni, vítamín og allskonar steinefni sem er svo undursamlega hollt og gott fyrir alla.
Að sjálfsögðu var mér boðið upp á alls konar hollustu sælgæti sem Bogga var nýbúin að baka og var að lofa starfsstúlkunum að smakka og að sjálfsögðu varð ég tilraunadýr líka. "Hollustu epla-eitthvað meir" var bara alls ekki svo slæmt þó svo ég sé persónulega meira fyrir svona óhollustu sælgæti. En það þarf alls ekki að endurspegla mat þjóðarinnar.

Hálfdán og Ásta voru á bak við hillusamstæðurnar þegar
myndatakan fór fram og var afsökunin sú að þau vildu helst ekki skyggja á stúlkurnar þegar myndin var tekin.
Sérstaklega Hálfdán, hann vildi bara vera einn á mynd einhverntíman
seinna.

Athugasemdir