Bogomil Font og Hákarlarnir

Bogomil Font og Hákarlarnir Bogomil Font og Hákarlarnir er ný hljómsveit sem leikur gamla músik, leggur hún nú leið sína á Siglufjörð og treður upp á

Fréttir

Bogomil Font og Hákarlarnir

Bogomil Font og Hákarlarnir
Bogomil Font og Hákarlarnir
Bogomil Font og Hákarlarnir er ný hljómsveit sem leikur gamla músik, leggur hún nú leið sína á Siglufjörð og treður upp á Hannes Boy í kvöld klukkan 22:00.  Bogomil Font syngur ásamt því  að spila á  trommur og slagverk en hann hefur getið sér gott orð í gegnum tíðina með Milljónamæringunum og Flís Tríó svo einhverjir séu nefndir.

Bogomil Font hefur nú fengið til liðs við sig gítarleikarann og lagahöfundinn Pétur Ben ásamt Óttari Sæmundsen á kontrabassa en Óttar er Siglfirðingum vel kunnur og er koma hans í bæinn yfirleitt merki þess að Þjóðlagahátíðin sé á næstu grösum.

Tríó þessara dindilmanna leikur sér með dægurlög frá fimmta og sjötta ártugnum þar sem perlur Hauks Morthens eru áberandi ásamt mörgum öðrum ódauðlegum smellum, íslenskum sem erlendum.
Einnig hafa þeir félagar sérhæft sig nokkuð í hrynvísri tónlist frá Karabíska hafinu en þar er að finna skemmtilegar stefnur með kankvísum nöfnum eins og Kalypsó, Mambó og Kúbanó.


Athugasemdir

10.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst