Bókarkynning í Héðinsfirði

Bókarkynning í Héðinsfirði Útgáfufagnaður og áritun. Ragnar Jónasson kynnir nýjasta Siglufjarðar- krimmann sinn, Rof, í Héðinsfirði

Fréttir

Bókarkynning í Héðinsfirði


Útgáfufagnaður og áritun.

Ragnar Jónasson kynnir nýjasta Siglufjarðar- krimmann sinn, Rof, í Héðinsfirði laugardaginn 20. okt. kl. 14 
og strax á eftir kl. 14:30 áritar hann bókina í Samkaupum Siglufirði þar sem hún verður á sérstöku tilboði !

Nú í vikunni er væntanleg í bókabúðir ný skáldsaga eftir Ragnar Jónasson, Rof, sakamálasaga sem gerist í Héðinsfirði. Verður útgáfunni fagnað í Héðinsfirði næstkomandi laugardag klukkan 14.00, þar sem höfundur kynnir bókina og eru allir velkomnir. 

Eins og kunnugt er fór Héðinsfjörður í eyði árið 1951, en í nýju bókinni er sögð saga tvennra ungra hjóna sem fluttu í fjörðinn árið 1955 og tóku sér búsetu við austanvert Héðinsfjarðarvatn. Dvölin fær snöggan endi þegar önnur kvennanna deyr með dularfullum hætti - og hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum.

Við ritun sögunnar leitaði Ragnar meðal annars fanga í bókum afa síns heitins, Þ. Ragnars Jónassonar fræðimanns og bæjargjaldkera á Siglufirði, í ritröðinni Úr Siglufjarðarbyggðum, til þess að gefa lesendum sem besta innsýn inn í lífið í þessum afskekkta firði á árum áður, en bókin er tileinkuð minningu Þ. Ragnars og konu hans, Guðrúnar Reykdal.

Mynd og texti: aðsent

Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst