Bókasafnsdagurinn!

Bókasafnsdagurinn! Bókasafnsdagurinn er haldinn öðru sinni þriðjudaginn 17. apríl 2012. Slagorð dagsins í ár verður "Lestur er bestur".Markmið dagsins er

Fréttir

Bókasafnsdagurinn!

Bókasafnsdagurinn er haldinn öðru sinni þriðjudaginn 17. apríl 2012. Slagorð dagsins í ár verður "Lestur er bestur".
Markmið dagsins er að vekja athygli á öllu því góða starfi sem unnið er á bókasöfnunum og mikilvægi bókasafna.
 
Á Bókasafni Fjallabyggðar á Siglufirði er "allt að gerast" þar sem endurskipulagning hefur farið fram og skráningu safnkosts útlána í Gegni, sem er rafræn samskrá bókasafna, er að ljúka.
 
Í tilefni Bókasafnsdagsins erum við með könnun í gangi á því hver er uppáhaldsbók safngesta og tökum vel á móti gestum okkar því allir eiga að vera velkomnir á Bókasafn Fjallabyggðar og þangað á að vera gott að koma.

Nokkrir bekkir grunnskólans heimsækja bókasafnið í dag og í kvöld verður prjónakvöld en slík kvöld hafa verið haldin tvisvar í mánuði í vetur og verið vel sótt og ánægjuleg. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á prjónakvöldin og ekki er nauðsyn að hafa prjónana meðferðis.


 
 
Með bókasafnskveðju!
Rósa Bjarnadóttir



Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst