Börn safna fyrir börn
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 30.08.2009 | 13:20 | | Lestrar 413 | Athugasemdir ( )
Á góðviðrisdögum er tilvalið að halda tombólur á götum úti. Börn hafa verið iðin við að safna fyrir Rauða Krossinn í gegnum tíðina, og eru siglfirsk börn þar engin undantekning.
Á dögunum héldu nokkrir ungir og hressir krakkar tombólu fyrir utan Sparisjóð Siglufjarðar. Í þetta skiptið var ekki bara einn tombólubás með starfsemi heldur tveir, það er aldeilis áhugi fyrir að styrkja gott málefni hjá krökkunum! Rauði Krossinn lætur ágóðann renna til fátækra barna, þannig að börn eru að safna fyrir börn. Frábært framtak hjá krökkunum. Fleiri myndir HÉR

Athugasemdir