Breyttur lífsstíll

Breyttur lífsstíll Þessi vaski hópur starfsmanna Sparisjóðs Siglufjarðar hefur ákveðið taka upp breyttann lífsstíl, með það að markmiði að létta lundina

Fréttir

Breyttur lífsstíll

Hópurinn vigtaður
Hópurinn vigtaður
Þessi vaski hópur starfsmanna Sparisjóðs Siglufjarðar hefur ákveðið taka upp breyttann
lífsstíl, með það að markmiði að létta lundina og koma sér í betra form.




Það er oft erfitt fyrir fólk að stíga á vigtina eftir sældarlíf sumarsins og öllu sem því fylgir.

Hópurinn lét samt vaða og varð Hafnarvogin fyrir valinu, samanlögð þyngd var 1220 kíló.

Það á svo að vigta hópinn aftur að átaki loknu og vonast þáttakendur eftir umtalsvert minni tölu.

Aðalatriðið er samt að taka þátt, hreyfa sig og bæta andann á vinnustaðnum.

Flott framtak hjá Sparisjóðnum og óskar siglo.is þeim alls hins besta í átakinu.



Að vigtun lokinni var breyttum lífsstíl fagnað með ljúffengum heilsudrykkjum.





Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst