Bryggjuhús Njarðar syngur sitt síðasta
Í dag var hafist handa við að rífa bárujárnshjallinn sem Siglfirðingar kalla Bryggjuhús Njarðar og eru leifar af gamalli söltunarstöð.
Á Siglufirði hefur verið lögð áhersla á að hreinsa upp gamlar byggingar sem hafa verið í niðurníðslu og orðnar líti á bænum. Hefur þetta fegrað bæinn til muna á síðastliðnum árum.
Niðurrif Bryggjuhúss Njarðar er hluti af þessum verkefnum en þó liggur meira að baki þessa verkefnis þar sem það tengist fyrirhugaðri tilfærslu á Drottningabrautinni en hún kemur til með að færast breidd sína til austurs þegar fram líða stundir.





Athugasemdir