Dagskrá síldarævintýrisins 2009

Dagskrá síldarævintýrisins 2009 Það er óhætt að segja að farið sé að styttast í helgina stóru enda einungis 2 dagar til stefnu. Djassklúbbur

Fréttir

Dagskrá síldarævintýrisins 2009

Síldarævintýrið 2003
Síldarævintýrið 2003

Það er óhætt að segja að farið sé að styttast í helgina stóru enda einungis 2 dagar til stefnu. Djassklúbbur Ólafsfjarðar með Gísla Rúnar í fararbroddi hafa nú unnið hörðum höndum að skipulagningu hátíðarinnar og dagskráin nú orðin fullmótuð.

 

Á dagskránni má sjá að meðal annars verða Buff og Paparnir að spila, Bergþór Morthens verður með myndlistasýningu ásamt öðrum, söltunarsýning verður við síldarminjasafnið og nóg verður fyrir krakkana að gera í dorgveiðikeppnum og ýmsum leiktækjum. Dagskrána má einnig finna á vef hátíðarinnar http://sildaraevintyri.fjallabyggd.is/

Fréttamenn Siglo.is munu síðan fylgjast náið með hátíðinni og setja inn myndir af hinum ýmsu viðburðum yfir helgina.

 

Fimmtudagur  31. júlí
Ráðhúsið kl. 16:00
Myndlistamaðurinn Bergþór Morthens sýnir verk í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.

Siglufjarðarkirkja 20:00
Kertamessa - Þorvaldur Halldórsson og Sigurður Ægisson
 

Föstudagur  31. júlí

Blöndaslóð Kl. 13.00
*Sprell leiktæki opið fram á kvöld
 
Ráðhúsið kl. 13:00
Myndlistamaðurinn Bergþór Morthens sýnir verk í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.

Ráðhústorg Kl. 16:30
Hljómsveitin Heldri menn
 
Ráðhústorg Kl. 22.00
Hljómsveitin Buff
Lifandi tónlist
 
Allinn kl. 23:30
*Dansleikur með Hljómsveitinni Buff (tóti og Danni hita upp)

Veitingastaðurinn Torgið
Opið fram eftir kvöldi
Inn á stjörnumerkta*  atburðir er aðgangseyrir.
 

Laugardagur 1. ágúst

Golfvöllurinn að Hóli kl. 11:00
Opna SPS golfmótið

Blöndaslóð kl. 13:00
*Sprell leiktæki opið fram á kvöld

Ráðhúsið kl. 13:00
Samsýning myndlistamanna í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.
Listamenn sem taka þátt í sýningunni hafa undanfarin ár verið að byggja upp myndlistarstefnu sína og hafa verið dugleg við að sýna, bæði á einka og samsýningum hérlendis og erlendis.

Ráðhústorg/Síldarminjasafnið Kl. 13.30
Söltunargengið kemur á svið og tekur lagið.
Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson taka lagið.

Síldarminjasafnið  kl. 14:00 og 15:00
*Söltunarsýning
 
Bátahúsið kl. 17:30 og 21:00
*Meira salt - söngvar síldaráranna
-Óskalagaþáttur sjómanna: (Lesnar verða kveðjur til sjómanna "á hafi úti")
-Umsjónarmaður Steinunn María Sveinsdóttir
-Söngvarar: Björn Sveinsson, Birgir Ingimarsson, Friðfinnur Hauksson, Mundína Bjarnadóttir, Þorgeir Ástvaldsson og Þórarinn Hannesson.
-Sérstakir gestir: Ragnar Bjarnason og Þorvaldur Halldórsson.

Ráðhústorg Kl. 21.00
Hljómsveitin Frankfürt
Papar
Max
Evanger

Austan við Síldaminjasafnið kl: 24:00
Varðeldur og flugeldasýning í höndum björgunarsveitarinnar Stráka.

 Allinn kl. 23:30
*Dansleikur með Pöpunum (Hljómsveitin Evanger hitar upp)

Veitingastaðurinn Torgið
Opið fram eftir kvöldi

Inn á stjörnumerkta*  atburðir er aðgangseyrir.
 

 

Sunnudagur 2. ágúst
Hvanneyrarskál kl. 11:00
Helgistund í Hvanneyrarskál.

Golfvöllurinn að Hóli kl. 13:00
Opna SR golfmótið

Blöndaslóð kl. 13:00
*Sprell leiktæki opið fram á kvöld

Ráðhúsið kl. 13:00
Samsýning myndlistamanna í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.
Listamenn sem taka þátt í sýningunni hafa undanfarin ár verið að byggja upp myndlistarstefnu sína og hafa verið dugleg við að sýna, bæði á einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.

Ráðhústorg Kl. 14.00
Fjölskylduleikverkið Pína pokastelpa
Bryggjan við Síldarminjasafnið Kl. 15:00 og 17:00

*Sögusigling Síldarminjasafnsins á bátnum Húna II. Lagt af stað kl. 15:00 og 17:00.

Óskarsbryggja Kl. 15.00
Dorgveiðikeppni barna

Allinn Kl. 16.00
*Tónleikar með Hara Systrum

Ráðhústorg Kl. 17.00
Söngkeppni barna
Atriði frá Tónlistarskóla Siglufjarðar
Verðlaunaafhending fyrir dorgveiði- og söngkeppni

Síldarminjasafnið Kl. 16:30
Söltunarsýning

Ráðhústorg Kl. 21.00
Stúlli og Dúi
Rúnar og Gísli
Tóti og Danni

Allinn kl. 23:00
*Dansleikur með Stúlla og Dúa

Veitingastaðurinn Torgið
opið fram eftir kvöldi
 
Inn á stjörnumerkta*  atburðir er aðgangseyrir.
 


Í húsi Einingar Iðju við Túngötu (á móti gamla malarvellinum) verða haldnir AA fundir
Fimmtudagur kl. 20:30
Föstudagur kl. 23:00
Laugardagur kl. 18:00
Sunnudagur kl. 10:30

 


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst